Innkaupakarfan þín er tóm!
1 2 3 4 5 6 7

Sverð frá WKC Solingen

94,900 - 102,900

Frater.is flytur inn í litlu magni hágæða sverð við frábærar viðtökur bræðranna.

Solingen – WCK eru Rolls Royce sverðanna og engu til sparað hjá framleiðanda Solingen sverðanna til að gera þau sem glæsilegust. Hægt er að fá sverðin með ýmsum táknum ágröfnum á sverðsblaðið og velja á milli þrennskonar hausa.

Hiltin og hausarnir eru húðaðir með 24 karata gulli og blaðið í sverðunum er úr hágæða stáli.

Sverðin eru afhent í bláum bómullarpokum og hverju sverði fylgir upprunavottorð sem tryggir fyrsta flokks verklag og hágæða stál.

Ef sverðið er sérpantað getum við látið grafa á hiltin þau tákn og texta sem óskað er eftir hverju sinni.

Vegna lagaumhverfis megum við eingöngu vera með mjög lítið magn af sverðum á lager og því gott að vera í sambandi við okkur með góðum fyrirvara ef ske kynni að við ættum ekki sverðið sem þig langar í.

Verðin eru viðmiðunarverð sem miðast við gengi evrunnar gagnvart krónunni. Vinsamlegast hafið samband til að staðfesta verðið.

Valmöguleikar

  • Uppselt í bili! - Solingen sverð
  • Uppselt í bili! - Með leðurhulstri
  • Uppselt í bili! - Frímúaratákn grafin í blaðið
  • Uppselt í bili! - Frímúraratákn grafin í blaðið og leðurhulstur
powered by Shopify